Markverðir atburðir

Sjómannahátíð

Stór hátíð er haldin fyrstu helgina í Júní ár hvert í tilefni sjómannadags. Aðaldagskráin fer fram á laugardeginum með keppni á milli áhafna skipana Auðar og Hlífar en gestir hátíðarinnar skrá sig sem háseta á annanhvorn dallinn. Skipstjóri fer fyrir hvoru liði sem stjórnar og hvetur sitt fólk. Allir sem skrá sig og taka þátt í hátíðarhöldunum fá áletraðann gullpening fyrir þáttökuna. Verðlaunabikar er síðan afhentur þeirri áhöfn sem ber sigur úr býtum og hlýtur skipstjórinn hann til varðveislu. 

Þeir sem vilja geta grillað á staðnum eða borðað sinn kost á bryggjunni.


Kvennahlaup var í fyrsta skipti haldið í Grandavör 10 júní.2006 og tóku 46 konur þátt í því og ákveðið að endurtaka leikinn að ári. Gengið var niðrá fjöru ca. 1 km og til baka aftur fyrir þá alla hörðustu. Hertrukkur fylgdi göngugörpum með börn og fylgdarlið innanborðs.
Flettingar í dag: 59
Gestir í dag: 12
Flettingar í gær: 41
Gestir í gær: 13
Samtals flettingar: 47752
Samtals gestir: 18546
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 21:26:12